Nemendafélag Fjölsbrautaskóla Vesturlands

á Akranesi


Vogabraut 5

300 Akranes


kt. 640893-2149

NFFA | Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Nemendafélag Fjölsbrautaskóla Vesturlands

á Akranesi

Miðasala

Leiklistarklúbburinn Melló kynnir með miklu stolti, söngleikinn Grease!


Grease er einn þekktasti söngleikur í heimi og hefur hann heillað fólk um allan heim frá 1971. Þessi stórsýning er uppfull af grípandi og skemmtilegri tónlist, risastórum dansatriðum, líflegum og ólíkum persónum, ást, gleði og skemmtun. 


Grease fjallar um Danny Zuko og Sandy Dumbrowski og vinahópa þeirra. Danny er svalur leiðtogi leðurklæddu „T-Birds“ klíkunnar en Sandy er sæta, saklausa nýja stelpan í skólanum sem byrjar að hanga með „Pink Ladies“. Sumarrómantík þeirra tekur óvænta stefnu þegar Sandy byrjar í Rydell High, sama skóla og Danny og félagslegur þrýstingur, miskilningur og miklar tilfinningar unglingsáranna gera þeim erfitt að endurheimta sumarástina.


Leiklistarklúbburinn hefur sett upp Grease áður en það var árið 2015. Okkur fannst því tilvalið að setja aftur upp þennann stórskemmtilega söngleik sem allir elska. Í þetta sinn er það Einar Viðarsson sem sér um að leikstýra okkar frábæra, risastóra leikhópi en sýningin er fjölmennasta sýning sem sett hefur verið upp í FVA en yfir 40 nemendur fara á svið ásamt risastórum hópi nemenda sem sinna hinum ýmsu verkefnum sem tengjast því að setja upp svona stóra sýningu. Danshöfundur sýningarinnar er Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Tónlistarstjóri Flosi Einarsson.


Við hlökkum til að sjá ykkur í Bíóhöllinni!


Frumsýning er föstudaginn 12. apríl kl. 20!


Smelltu á dagsetningu hér fyrir neðan til að kaupa miða

Miðasala:


Frumsýning 12. apríl kl 20 - Uppselt!


2. sýning 14. apríl kl 17 - Uppselt!


3. sýning 15. apríl kl 20 - Uppselt!


4. sýning 16. apríl kl 20 - Uppselt!


5. sýning 19. apríl kl 20 - Uppselt!


6. sýning 21. apríl kl 17 - Uppselt!


7. sýning 22. apríl kl 20 - Uppselt!


Aukasýningar!!!

9. sýning 25. apríl kl 20 - Uppselt!


10. sýning 26. apríl kl 20 - Uppselt!


11. sýning 28. apríl kl 17 - Uppselt!


Allra síðasta aukasýning!!:

8. sýning 23. apríl kl 20

Share by: